Skip to product information
1 of 1

Anna C

Sambandsmarkþjálfun

Sambandsmarkþjálfun

Regular price 19,900 ISK
Regular price 19,900 ISK Sale price 19,900 ISK
Sale Sold out
Tax included.

 

Betri samskipti. Sterkari tengsl.

Öll sambönd ganga í gegnum tímabil þar sem samskiptin verða erfiðari, tengingin minnkar eða sömu vandamálin koma aftur og aftur upp.

Sambandsmarkþjálfun getur hjálpað ykkur að skilja hvort annað betur, tala saman á nýjan hátt og skapa samband sem byggir meira á öryggi, virðingu og tengingu.

Við vinnum meðal annars með samskipti, væntingar, mörk, þarfir og mynstur sem geta verið farin að standa í vegi fyrir nánd og góðum samskiptum.

Markmiðið er ekki að finna sökudólg — heldur að skilja hvað er að gerast á milli ykkar og finna leiðir sem virka betur fyrir bæði.

Sambandsmarkþjálfun getur hjálpað ykkur með:

  • samskipti og misskilning
  • endurtekin rifrildi
  • tilfinningalega fjarlægð
  • mörk og þarfir
  • traust
  • nánd og tengingu
  • stórar breytingar í lífinu
  • mismunandi væntingar til sambandsins
  • að finna aftur tilfinninguna um að vera í sama liði

Sambandsmarkþjálfun hentar bæði pörum sem eru að takast á við áskoranir og þeim sem vilja einfaldlega styrkja sambandið áður en vandamál verða stór.

Sambandið þarf ekki að vera í krísu til að fá stuðning.

Stundum getur eitt gott samtal breytt miklu.

Bókið tíma í sambandsmarkþjálfun og takið fyrsta skrefið í átt að sterkari tengingu.

View full details